6. Egils saga - Aurasálin

Síðasti valsinn stiginn undir tryllingslegum takti! Egill er eins manns hljómsveit með allt vopnabúrið á lofti. Við fáum töfralækninn, bardagamanninn, skyrhatandi uppkastarann, skáldið og elliæra æringjann. Skipinu er siglt í land… já eða strand. Stóra spurningin er þó: Getur Stebbi Jak róað Egil áður en hann eyðileggur partýið? Hlustið og hlýðið. Gestur: Stefán Jakobsson Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson

Om Podcasten

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.