x Oddur Atli

Oddur Atli er venjulegur strákur sem gengur í 8. bekk í Oddeyrarskóla. Eða hvað? Oddur er kannski betur þekktur undir listamannanafninu OddurArg og sennilega yngsti atvinnulistamaður á Íslandi. Ef þú hefur stoppað við í Hauganesi, rétt hjá Dalvík, á ferð þinni um landið þá hefur þú kannski rekist á verk eftir Odd þar sem hann fær útrás fyrir brennandi áhuga sinni á miðöldum og Íslendingasögunum. Oddur fer yfir hvernig honum, sem grunnskólanemi, finnst að sögurnar ættu að vera kenndar í skólanum og fleira skemmtilegt. Hlustið og hlýðið!

Om Podcasten

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.