Ert þú með sóttkvíða?

Þvo hendur og spritta, setja upp maska, knúsa engan, forðast mannamót, snerta ekkert og halda sig heima. Það er nú ekki að furða að þetta allt saman valdi einhvers konar kvíða hjá okkur öllum!Ingileif og María ræða um hinn svokallaða sóttkvíða, hvenær hann er farinn að vera úr hófi og hvernig er best að díla við hann. Þátturinn er í boði ChitoCare og Playroom.is.

Om Podcasten

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir ræða hina ýmsu fleti mannlegrar tilveru. Í Raunveruleikanum er ekkert undanskilið og einlægnin, húmorinn og berskjöldunin í fyrirrúmi.