SAHARA PODCAST - Þáttur 2 | COVID19 - Dagný Laxdal & Guðmundur Pálsson

Við lifum á einkennilegum tímum núna sem kalla á breytta hugsun, enn meiri samstöðu og hröð viðbrögð. Við hjá SAHARA fengum til okkar reynslubolta á sviði markaðssetningar, sölu og þjónustu til að ræða við okkur um markaðsmál á tímum COVID-19. Samtals voru framleiddir fjórir þættir þar sem við fáum að heyra frásagnir um hvernig eigi að markaðssetja Ísland, hvernig auglýsingaumhverfið er að breytast, hvað þarf að hafa í huga þegar þú opnar netverslun og margt fleira.

Om Podcasten

SAHARA er stafræn auglýsingastofa sem býður uppá heildstæða lausn á sviði stafrænnar markaðssetningar. Við sérhæfum okkur í umsjón með samfélagsmiðlum, myndbanda- og auglýsingagerð, hönnun, árangursmælingum og stafrænum lausnum. Okkar hlutverk er að aðstoða fyrirtæki við að skara framúr með því að greina hvaða þætti leggja þurfi áherslu á þegar kemur að stafrænum miðlum og vinna að lausnum sem henta hverju sinni. Við störfum með fyrirtækjum að hvaða stærðargráðu sem er og aðlögum okkur eftir stærð verkefna.