Samfélagið í Sjávarklasanum og kaffinördar

Samfélagið sendir út í Sjávarklasanum í Grandagarði. Þar starfa fjölmörg fyrirtæki, allt frá litlum, nýstofnuðum sprotafyrirtækjum til rótgróinna sjávarútvegsrisa. Við ræðum við fólkið sem starfar í Sjávarklasanum og fræðumst um starfsemina og samfélagið í húsinu. Og við fáum í heimsókn umsjónarmenn stærsta kaffiumræðuvettvangs landsins, Facebook-hópsins Kaffinördar, og ræðum kaffinördisma, kaffisnobb og fleira.

Om Podcasten

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon. Netfang: samfelagid@ruv.is