Umhverfismánuður atvinnulífsins - Samorka - Hvernig hleður landinn?

Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku fær til sín Kjartan Rolf Árnason, deildarstjóra kerfisstýringar hjá Rarik. Þau ræða vítt og breitt um orkuskipti og það hvernig landinn hleður. Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur októbermánuður eyrnamerktur umhverfismálum og málefnum orkuskipta. sa.is

Om Podcasten

Í samtölum atvinnulífsins förum við vítt og breitt um ólíka kima atvinnureksturs á Íslandi. Nýjustu þættirnir eru teknir upp í október og nóvember 2023 í tilefni af Hringferð SA - Samtaka um land allt. Þar  tekur Guðný Halldórsdóttir púlsinn á atvinnurekendum á hverju svæði. Þá má finna fróðlega þætti í tengslum við sjálfbærnimál í tilefni af umhverfismánuði atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem byggja á ólíkum atvinnugreinum; iðnaði, sjávarútvegi, verslun og þjónustu, ferðaþjónustu, orku- og veitu og fjármála. Yfir 2.000 fyrirtæki í fjölbreyttum greinum eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði.