11. Skál fyrir gömlum tímum
Óvænt áföll geta breytt tilverunni á örlagastundu og missirinn gagnvart nýlátnum einstaklingi er fljótur að taka sinn toll á nánustu aðstandendur. Mörk vinnulífs og fjölskyldulífs eru komin að frostmarki og er lítið annað en létt kaos í stöðunni þegar allir þekkjast í litlu bæjarsamfélagi og gegna nokkrum hlutverkum í einu. Má vissulega deila um hvort þetta sé besti tíminn fyrir Davíð til að varpa sannleikssprengju sem gæti haft grafalvarleg áhrif á útkomuna framundan. Annars eru stöllurnar Ragnheiður (Sólveig Arnars), Auður (Halldóra Geirharðsdóttir) og Hildur (Erla Ruth Harðardóttir) eru formlega sameinaðar á ný til að minnast vinkonu sína heitnu og gamla tíma í senn. Það sem virkar þó í fyrstu sem athöfn til að kveðja gömlu sárin verður hratt og bítandi að nýju upphafi þar sem mögulega er eitthvað enn verra í uppsiglingu en nýliðið dauðsfall sem skekur Glerársanda. Ekki láta einfaldleikann blekkja, því nóg er til að róta í þegar kemur að þessum þriðja/ellefta þætti. Ekki síst blekkingarleikirnir sem hér ríkja á milli vinafólks og fjölskyldu. Baldvin og Tómas skoða þáttinn í þaula og hvort það sé raunverulega þarna viðeigandi að skála fyrir gömlum tímum. 00:00 - Fríða og þynnkudýrið 02:24 - Einkalíf og löggulíf 05:37 - Aníta útundan 07:29 - Gústi reynir 08:40 - Suðupottur og suðupunktur 10:30 - Hús Ragnheiðar 12:25 - Þær þrjár 16:00 - Stöllur með reynslu af sprelli 18:48 - Davíð og erfiða samtalið 24:40 - Tommi á erfiðum stað 27:39 - Verksummerki í raunheimum 29:09 - Hver er sannleikurinn? 33:01 - Förunautar í þjáningu 34:03 - Merkelegt um skjalaverði 37:06 - Siglir í annað andaglas 40:51 - Lygin í loftinu 41:46 - Fuglarnir og Heiða 43:10 - “Farðu bara varlega” 45:59 - Yfirgefin