13. Í takt við tímaskekkju

Núansar og stórar ósagðar tilfinningar koma til tals á meðan sögur fara að spyrjast út af nýjum likfundi á abstrakt litla sveitabænum. Álfheiður og Tómas greina ástandið á Anítu að sinni, mýktina í loftinu og tensjónana hjá unglingunum og hvað það er við Steffí sem gerir hana að tærum senuþjófi þáttarins.  Fimmti/Þrettándi þáttur leyfir heildarsögunni að taka hlutina rólega eða leyfa hlutunum svolítið “að malla”, að sögn leikstjórans. Álfheiður ræðir allar þær lúmsku, léttu og þyngri mómentum þáttarins. Fáeinar senur voru allsvakalega stokkaðar í lokaklippi, meðhöndlun hinnar kornungu Kríu heldur einnig áfram að vera væn uppspretta af baksviðs- og reynslusögum þessa setts. Þá koma líka furðulegir Íslandssiðir til tals og hvernig ‘slys’ í tökum geta orðið óvænt að litlum gullmolum, eins og frá er sagt. Efnisyfirlit: 00:00 - Augun í Kríu 03:11 - ‘Breather’ karakterþáttur 06:50 - Hjá Davíð, þá Davíð 09:01 - Er Aníta að breytast í móður sína? 12:19 - Jonna rödd skynseminnar 15:50 - Steffí stelur senunni 22:03 - ‘Systkinin’ Fríða og Gústi 25:30 - Hvar er Gabríel? 28:03 - Undarlegir siðir 32:45 - Hvað með Dísu? 37:10 - Að finna rétta nálgun 38:40 - Þær þrjár og stigmögnun 43:20 - Yngri leikararnir 48:10 - Pylsupöntun úr ‘Í takt við tímann’

Om Podcasten

Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum. Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en Tómas kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar. Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig. Þá má líka búast við fleiri vinklum og gestum í þessari djúsí djúpgreiningu. Hefst þá stúderingin.