15. Yfirheyrsla í hágír
Allt er sett í hágír og löggufaktorinn er settur í forgang sem aldrei fyrr. Yfirheyrslur, svör og sársauki eru í brennidepli áður en líður að lokalendingunni. Gústi, Fríða og jafnvel Jonna díla við þungar tilfinningar og ljósara er orðið hvert hlutirnir stefna hjá Anítu og Erlu. Þarna er líka miklu ljósi varpað á hvernig þær Auður, Ragnheiður og Hildur raunverulega díla við hlutina. Erlendur leikstjóri (en hann er vissulega íslenskur) leiðir okkur í gegnum umfang þáttarins og aðferðafræðina sem fylgir andrúmslofti Glerársanda, í senn hvernig hann fékk að leika sér með ýmis konar stílbrögð. Fáum við jafnframt dýpri innsýn í vegferð Erlends í kvikmyndagerð og innbyggðu bíódelluna sem hann deilir með Tómasi. Efnisyfirlit: 00:00 - Nauh, Snorri-cam! 02:50 - Hvernig líður Anítu? 04:40 - Megaspírallinn 07:17 - Fram af brúninni 09:00 - Ryþminn á hasarnum 12:30 - Þær þrjár og vilt túlkun 13:50 - Infó-dömp og snapp 16:20 - Subbuleg vinnubrögð 17:25 - Hvernig líður flestum? 18:23 - Hlutlaus vs. hlutdræg kvikmyndagerð 21:52 - Hemlur uppstillinganna 25:10 - Stílíseringar í senum 27:18 - Hvað með unglingana? 30:50 - Hið klíníska eða hið mannlega 37:06 - Vegferðin að bíógerð Ella 41:20 - Múltítask er alltaf plús 43:03 - Hvað sögðu prufuhóparnir? 46:01 - Persónulegar tengingar við verkið 48:42 - Tabú birtingarmyndir 52:02 - Heilbrigð ögrun listarinnar 55:40 - Ó-shit, Erla! 58:10 - Hafið er svart