16. Að fjara eða fríka út
Íbúar Glerársanda sameinast í svartnættinu á meðan óbærilega tens leit nær hámarki. Áttundi/sextándi þáttur fer alla leið, eða allavega á átakanleg svæði sem þarft er að skoða. Baldvin og Tómas ræða þennan hinsta kafla í stærri sögu Anítu, Fríðu og Gústa og félaga á söndunum. Svörin eru skýrð út og hnútarnir hnýttir að mestu. Baldvin segir hver hugsunin og kjarninn er á bak við þennan lokasprett. Fylgir þarna líka hressileg saga af viðbrögðum fólks við þættinum í rýnishópum. Efnisyfirlit: 00:00 - Úrslitastund og fyrsta klipp 04:12 - Lýsingar Elíasar 06:55 - Skrefin tekin 07:20 - Nýr hott-sjotti að sunnan 09:10 - Samstaða innan fylkingar 12:20 - Tilfinningarússíbanareið 16:00 - Krítískt ástand 20:14 - Vísindamaðurinn missir kúlið 24:27 - Stóri lykillinn að endinum 28:05 - Ólíklegasti bjargvætturinn 33:00 - Stóra, stóra, stóra málið 36:00 - Hinsta skotið, rýnishópur og Fjara 39:40 - Spákorn 40:39 - Erfiðar útitökur 42:52 - Captain Phillips mómentið 46:00 - Sería þrjú yrði hundleiðinleg…