5. Enn ein súpan

Veganréttir og makamál eru áberandi í fókus í fimmta hluta Svörtu sanda. Hér að sinni er varpað ljósi á klassíska klisju í morðsögugeiranum sem hér byrjar að laumast inn í Svörtu sanda, þegar tengingar við hundgamalt, dularfullt sakamál fara að birtast úr óvæntum áttum. Þá er aldeilis kannaður púlsinn á ástarmálum okkar fólks. Nú sitja allir helstu karakterar í súpunni, með salt í sári á meðan nokkrir þeirra slást um betri hamborgarann. Velkomin í 'Stóra sambandsþáttinn'. Á rammpökkuðum klukkutíma ræða Tómas og Baldvin viðbrögð við þáttunum hingað til, óvænta boðið á Berlinale á meðan sjálfskipaðri sóttkví stóð og þetta helsta sem að baki liggur og mögulega framundan í framvindu seríunnar. Þá biður Tómas leikstjórann um sambandsráð á meðan leitast er eftir svörum um hvernig það var að skjóta nektarsenu með °360 snúningi á kameru. Einnig er komið inn á almennt upplýsingaflæði í handritsgerð, hið ósagða á skjánum og ólíku pörin í sviðsljósinu. Efnisyfirlit: 00:00 - Viðbrögð fólks á hægum bruna 04:25 - Salómon púllar Shame-skotið 07:45 - Þúsund orða svipur 10:55 - Sambönd í súpunni 19:25 - Steffí setur úrslitakosti 23:40 - "Éttu skít" 27:44 - Þagað yfir leyndarmálum 30:50 - Gramsað í gömlum munum 34:22 - Boð á Berlinale 37:07 - Stóra, stóra málið 42:02 - Tónar og krimmaþræðirnir 45:54 - Góð vinaboð eða unglingaþras 48:35 - Úr nánd í nýtt lík 50:11 - Er komin pressa á 'payoff'ið?' 57:37 - Börgerinn örlagaríki 1:01:12 - Súpa af karakterum 1:07:35 - Ólíkir kúltúrar

Om Podcasten

Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum. Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en Tómas kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar. Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig. Þá má líka búast við fleiri vinklum og gestum í þessari djúsí djúpgreiningu. Hefst þá stúderingin.