6. Lítill drengur með frómas í hausnum

Rauðsíldarflaggið er úr sögunni en rauðir fánar alls staðar í lífi Anítu og félaga, enda púslin hægt og bítandi farin að smella saman á meðan fleiri spurningar raðast upp. Grímur falla, kúli er tapað og verða ‘mömmukomplexar’ allsráðandi en á þessu stigi í sögunni verður ekki aftur snúið. Til að bæta gráu ofan á svart er ömurlegasta pizzukvöld allra tíma í vændum á heimili Elínar. Nú eru það eitraðir sjarmörar og vafasamir mömmustrákar sem koma rakleiðis til umræðu hjá Tómasi og Baldvini, auk þess hvernig meira er í Fríðu og Ragnar spunnið en áður bar að geta. Tómas telur tilvísanir í Alfred Hitchcock vera þarna nokkrar skýrar og kemst ekki hjá því að ræða fyndnu fjarvistarsönnunina og leiktakta Kolbeins Arnbjörnssonar.  Baldvin segir frá földum konfektmolum sögunnar, „föndurpitsu“ og rifjar einnig upp hvernig ferlið gekk fyrir sig að skjóta sjónvarpsseríu þegar COVID-faraldurinn var nýfarinn að herja á heimsbyggðina. Þá er líka varpað ljósi á breyttu tíma kvikmyndagerðar á Íslandi, spuna á setti og óvænta tengingu Tómasar við framleiðslu seríunnar - en þar er einmitt heimili Elínar í brennidepli.  Búið ykkur undir ‘Sækó-súpu’. Efnisyfirlit: 00:00 - Tökuferli, þá og nú 06:15 - Af hverju, Salómon? 11:03 - Psycho-áhrifin og Marion Z 14:00 -Einkalíf í klessu 17:55 - Lítill drengur missir kúlið 24:14 - Föndurpizza 26:51 - Besta fjarvistarsönnun bæjarins 30:20 - Aníta leynir á sér 35:02 - Aldís þorir 42:52 - Ofhugsun á verki og litla Ísland 49:13 - Túlkunarhnit á mat

Om Podcasten

Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum. Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en Tómas kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar. Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig. Þá má líka búast við fleiri vinklum og gestum í þessari djúsí djúpgreiningu. Hefst þá stúderingin.