Gullkorn: Tengsl og aftenging
Lengi vel er hægt að spekúlera um hvað lætur persónu eins og Anítu Elínardóttur tikka, en þá er auðvitað best að leita beint til einstaklingsins sem stendur hvað næst þessari persónu og á óneitanlega allra mest í henni. Aldís Amah Hamilton er múltítaskari mikill með skýr gildi í lífinu, mikla útgeislun, ómælanlega ást á dýrum og heilbrigða lyst fyrir alls konar list. Í þætti þessum er kafað út í allt hið mögulega í sögu Svörtu sanda fram að og út fimmta þátt. Við skoðum mengi persónanna, sambönd, tengsl og margs konar tabú og eldfim málefni sem seríurnar hafa verið að fjalla um almennt. Og já, hver er eiginlega Emil? Efnisyfirlit: 00:00 - Lífsgildi í verkum 02:02 - Kjarnasetningar og upplýsingasprengjur 06:25 - Samband Fríðu og Anítu 11:50 - Gerólíkar seríur, ólíkt álag 16:17 - Karakterum þröngvað í box 18:38 - Mikilvæga senan í bílnum 24:23 - Ný hlið á Steffí 31:01 - Jonna og co. 33:29 - “Ég vildi bara að þú sæir mig” 37:37 - Hvaða Emil?! 39:55 - Boginn hennar Auðar 43:49 - Að eignast eða eignast ekki börn 48:50 - Harmur borinn í hljóði 54:15 - Steiktar staðreyndir 59:57 - Trú á Álfu 1:02:59 - Hlúað að Gabríel 1:05:45 - Tótal aftenging 1:06:40 - Hallmark-kveðja