Teitur Þórðarson – Þjálfarinn

Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í síðari hlutanum er fjallað um þjálfarann Teit Þórðarson. Þjálfaraferill Teits spannar rúm 30 ár þar sem hann þjálfaði í Svíþjóð, Noregi, Eistlandi, Íslandi, Kanada og næstum því í Indlandi. Ferillinn litaðist mjög af uppbyggingu liða þar sem Teitur valdi ekki alltaf einföldustu leiðina. The post Teitur Þórðarson – Þjálfarinn first appeared on .

Om Podcasten

Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina munu koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt. Þátturinn hefur það að markmiði að allir geta haft gaman af, hvort sem fólk fylgist með knattspyrnu eður ei. Lítið verður rætt um nýaflokna leiki eða taktísk atriði en því meira um eftirminnileg atvik úr sögu félagsins og annað skemmtilegt sem tengist því. Vertu velkominn um borð kæri hlustandi! Umsjónarmaður: Björn Þór Björnsson Tæknimál: Snorri Kristleifsson