#280 Það sem Ísland þarf að gera *FRÍR ÞÁTTUR*

Þessi þáttur er frír en komdu samt í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur Íslendingar þurfa að breyta um hugarfar á ýmsum sviðum að mati bræðranna, meðal annars að endurvekja gömlu góðu sjálfsmyndina, ef vel á að fara. Auk þess leggja bræðurnir til, að hætti Cató gamla, að Heiðari Guðjónssyni verði hleypt á hafsbotn að sækja olíu. Þetta segir Bergþór innblásinn af dvöl sinni í Oslóarfirði í hinum ríka Noregi, okkar fornu fósturjörð aftur í ættir. Umræður þessar spretta um leið af þeirri staðreynd sem nú er orðin lýðum ljós, að karlmenn hugsa mjög oft og mjög þungt um Rómaveldi. Þegar ég skrifa þetta man ég að við þurfum að fá Siffa G. í þáttinn. Önnur umræðuefni: Russell Brand og Edvard Munch og hvaðeina annað. Og tilkynning: Nú er ekki lengur vísað til Domino’s-vinstrisins, heldur Volt-vinstrisins, í anda nýs sendifyrirtækis í Reykjavík, þar sem sendlar harka á hefðbundnum reiðhjólum fyrir umburðarlynda símafíkla.

Om Podcasten

www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður: „Eina hlaðvarp sem ég get hlustað á.“ – „Ég verð gáfaðri af því að hlusta á þetta.“ – „Lét mig hætta að vilja drepa mig.“ – „Besta leiðin til að vita það sem skiptir máli.“ – „Ég verð anti-þunglynd við að heyra ykkur tala um lifnaðarhætti ykkar.“ Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019, í boði blóðbræðranna Snorra og Bergþórs Mássonar. Þáttur á hverjum föstudagsmorgni. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Fylgisti með á Patreon og Instagram/X: @bm1995amorfati