#30 Pétur Sóttkvíernan, tjara og fiður í skólablöðum og NEI við kynfræðslu
Skoðanabræður áskilja sér rétt til þess að ræða ekki undir nokkrum kringumstæðum þá ákvörðun hóps ungra karlmanna að neita sér um að stunda sjálfsfróun og fara í kaldar sturtur. Slík umræða fer fram í öðrum síðri hlaðvörpum, sem þó er erfitt að festa fingur á hver eru nákvæmlega, enda er eftir allt aðeins eitt hlaðvarp til í leiknum: Skoðanabræður. Málið er í sjálfheldu. Annað mál í sjálfheldu er Pétur Sóttkvíernan athafnamaður: Hann er í sóttkví á heimili sínu ásamt allri fjölskyldu sinni og verður í nokkra daga enn. Manni hefnist að hafa verið í Ölpunum. Pétur er fenginn sem karlmaður vikunnar í annað sinn og lýsir fyrir hlustendum raunum hins raunamædda manns, hvers raunir eru þó nákvæmlega engar að undanskildum nákvæmlega þeim einu raunum að vera í sóttkví. Í sömu mund er Pétri veitt ókeypis atlaga að því að hreyfa andmælum við meintum svívirðingum í hans garð á vettvangi hlaðvarpsins, tækifæri sem á að kosta 250.000 krónur, en Pétur fær kostnaðarlaust upp í hendurnar fyrir sakir gamallar vináttu og hefðbundinnar íslenskrar frændhygli. Til umræðu kemur þó að greiðsla sé innt af hendi í formi hlutabréfa í Icelandair, en fljótlega sammælst að sú aðgerð væri bjarnargreiði á þessum síðustu og verstu. Og í þriðju málsgrein lýsingar sem þessarar brýst fram kunnugleg upphrópun: Annað rætt! Skoðanabræður skera upp herör gegn ritskoðun skólastjórnenda á efni nemendafélaga, hvetja til upplausnar í þeim efnum, ræddir eru karlmenn sem gera tilraunir til þess að stunda mök við sjálfa sig með því að beina eigin getnaðarlimi inn í eigin endaþarm í trúarlegri athöfn, og svo er kórónaveiran yfir og allt um kring. Í því samhengi verða aðgerðir Donalds Trump Bandaríkjaforseta að teljast fyllilega fullnægjandi, svo ekki sé fallið í þá gildru að ætla honum allt illt sem frá Bandaríkjamönnum og þeirra heimsvaldastefnu kemur. Skoðanabræður – frjálst og sjálfstætt hlaðvarp – sem reiðir sig einvörðungu á styrki frá hlustendum í númerið 661-4648 á AUR eða KASS. Bylgjurnar eru Útvarps 101.