#339 Skoðanir Friðriks Rafnssonar *BROT*

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Friðrik Rafnsson er þýðandi tveggja minna uppáhalds rithöfunda Milan Kundera og Michel Houellebecq. Í þessum þætti förum við yfir ítarlega yfir þessa tvo menn og Friðrik segir okkur frá hugmyndum þeirra, bókum og persónuleikum. Hann hitti Kundera oft og hefur þýtt hverja einustu bók hans. Houellebecq hitti hann líka þegar hann kom til Íslands árið 2012. Fyrri hluti þáttarins fjallar um Kundera og síðan skiptum við yfir í Houellebecq um miðbik. Þetta var dásamlegt að taka upp. Takk fyrir mig og Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

Om Podcasten

www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.