#340 Að drepa meistarann sinn *BROT*

Hlustaðu í fullri lengd (90mín+) inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um það hvernig maður hugsar frjálst, lærir af meisturum sínum og heldur áfram í sínu persónulega þróunarferli. Í þessu samhengi eru tveir menn teknir fyrir: heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og tónskáldið Richard Wagner. Það er sagt frá þessum mönnum (bæði fyrir the tourist & the purist) og samband þeirra greint í þaula út frá þessum pælingum um að drepa meistarann sinn og frelsa sig. Þættinum er skipt upp í sex hluta: 1) Inngangur 2) Samband N og W 3) Upplifun í La Scala óperunni í Mílanó (live hljóðupptökur) 4) Sambandsslit N og W 5) Vettvangsferð til Turin (live hljóðupptökur) 6) Lokaorð og samantekt Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Það var sérlega gaman að búa þennan þátt til. Við erum uppi, og við ætlum að halda því áfram :).

Om Podcasten

www.patreon.com/skodanabraedur Skoðanabræður: „Eina hlaðvarp sem ég get hlustað á.“ – „Ég verð gáfaðri af því að hlusta á þetta.“ – „Lét mig hætta að vilja drepa mig.“ – „Besta leiðin til að vita það sem skiptir máli.“ – „Ég verð anti-þunglynd við að heyra ykkur tala um lifnaðarhætti ykkar.“ Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019, í boði blóðbræðranna Snorra og Bergþórs Mássonar. Þáttur á hverjum föstudagsmorgni. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Fylgisti með á Patreon og Instagram/X: @bm1995amorfati