#55 Skoðanir Andreu Rafnar

Það er ekki óskiljanlegt að sá sem gerir tilraun til þess að byrja að æfa fótbolta of seint og lendir í trámatísku áfalli og allsherjarhöfnun verði varanlega fráhverfur íþróttahreyfingunni til lengri tíma í kjölfarið og leggi sig jafnvel í líma við að kasta rýrð á hana og beiti í því skyni fyrir sér sínu persónulega hlaðvarpi. Skoðanabræður opna sig um þetta, en það er ekki aðalmálið. Andrea Röfn Jónasdóttir, bloggari, módel og svei mér þá áhrifavaldur, er karlmaður vikunnar og fer yfir aðalmálin með bræðrum: Áhrifavaldaleikinn, skoðanaleikinn, bloggleikinn, tískuleikinn og svo auðvitað barnaleikinn. Loks einnig fótboltaleikinn, sem Andrea er lofuð inn í. Innsýnin sem fæst þaðan er verðmæt og setur ofangreint tráma í mildara samhengi, en getur síst talist fullkomið mótefni. Það finnst aldrei. Djúsinn, á vegum Útvarps 101, og grundvöllurinn á www.patreon.com/skodanabraedur.

Om Podcasten

www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.