#65 Skoðanir Joey Christ og Lóu Bjarkar

Eins og Lóa orðar það vel: Fara í Skoðanabræður og eyðileggja mannorð sitt. Í þeirri feigðarför hennar eru Skoðanabræður ekki meira en auðmjúkir verkefnastjórar, þeir taka á móti henni og skapa umgjörð fyrir hana til þess að veitast með skipulegum hætti að eigin orðspori. Hvernig fer maður að því? Með orðum! Orð.. lengi hef ég haft á þeim illan bifur, sagði skáldið, og fleiri mættu tileinka sér, þeirra á meðal, Skoðanabræður. Jóhann er meðreiðarsveinn og hefur fyrir sitt leyti einnig upp viðleitni til áþekkra fyrirætlana og Lóa sjálf lýsir. Að tala í útvarp yfirleitt er enda auðvitað bara birtingarmynd dauðans. Þetta fólk er sem betur fer vant. Það var með Tala saman hér á árum áður á Útvarpi 101, framleiddi þar gæðagas á ljósvakanum dagsdaglega um hríð, og færir nú út kvíarnar úr hljóði í mynd. Þáttur á Stöð 2 í kvöld, er það sem ég á við. (Hver er ég-ið í textanum (hefur sögumaðurinn þegnrétt í lýsingu á hlaðvarpsþætti (uss, dreptu þig))).  PC-ismi, stéttaskipting, Free The Nipple, rasismi, raunhæf markmið í lífinu og eintómur sannleikur opinberaður í hvívetna, svo sem er Skoðanabræðra von og vísa og ekki síður viðmælenda þeirra, þar sem er valinn maður í hverju rúmi. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur og leggið þessari tilberastarfsemi lið. Útvarp 101, vettvangur fólksins.

Om Podcasten

www.patreon.com/skodanabraedur Fremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi. 5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfati Ber er hver að baki nema sér bróður eigi.