Á slóðum Moniku á Merkigili

Þáttur dagsins er helgaður alþýðuhetjunni Moniku Helgadóttur og heimaslóðum hennar, Merkigili í Austurdal í Skagafirði. Sögu Moniku þekkja margir. Bóndinn, ekkjan, íslenska sveitakonan sem bjó ásamt átta börnum sínum, sjö dætrum og einum syni, á afskekktum bæ í innsveitum Skagafjarðar, í Austurdal, þar sem Austari-Jökulsá rennur straumþung niður. Hrikaleg gljúfur og gil einkenna landslagið og samgöngur að bænum voru erfiðar, jafnvel lífshættulegar, sérstaklega þegar farið var um hið hrikalega Merkigil, gilið sem bærinn er kenndur við. Á þessum afskekkta stað byggði Monika upp myndarlegt bú og varð landsþekkt og dáð, sérstaklega eftir að ævisaga hennar, Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín kom út árið 1954, þegar Monika var aðeins 53 ára gömul. Þátturinn var áður á dagskrá 2. september 2022. Viðmælandi er Ingibjörg Elín Jónasdóttir, leiðsögumaður. Í þættinum hljóma brot úr: Kona er nefnd, viðtal Indriða G. Þorsteinssonar við Moniku frá árinu 1973. Konan í dalnum, viðtal Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Moniku frá árinu 1981. Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín, útvarpssaga í flutningi Sigríðar Hagalín leikkonu frá árinu 1988. Í lok þáttar er lesið stutt brot úr eftirmála ævisögu Moniku frá árinu 2017. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Om Podcasten

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.