Fyrsti þáttur

Spaugstofumenn vilja leggja sitt að mörkum og þess vegna koma þeir nú saman til að létta fólki samkomubann og aðrar þrengingar á tímum farsóttarinnar. Nýtt hlaðvarp, Spaugvarpið, fer hér með í dreifingu, en í því er fjallað um atburði og ástand líðandi stundar á misábyrgum nótum. #móðirmenníkvíkví #spaugvarpið.

Om Podcasten

Spaugvarpinu er ætlað að létta fólki lund á fordæmalausum tímum, skoða ástandið úr óvæntum áttum og þjappa þjóðinni saman einmitt þegar samkomubann heldur henni aðskilinni. Spaugstofuna skipa Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason, en við hljóðfærið situr Jónas Þórir Þórisson. Hljóðmaður: Kristinn Gauti Einarsson.