Fjármálaráðherra um tollastríðið og Kennedy ráðleggur bólusetningar

Tollastríðið sem skollið er á hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur með fjölmiðlum síðustu daga, Bandaríkjaforseti hleypti öllu í bál og brand með verndartollum sem hann lagt á byggð og óbyggð ból; Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, sagði í Morgunútvarpinu í morgun að tollastefna Bandaríkjastjórnar myndi áfram koma illa við hagkerfi heimsins og það væri ákveðin hætta á heimskreppu. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, ræðir stöðuna Mislingar hafa breiðst út á heimsvísu undanfarin ár, dregið hefur úr bólusetningum gegn þeim og faraldur geisar í Texas, Viðsnúningur Roberts Kennedys heilbrigðisráðherra Bandarríkjanna sem hvetur nú til bólusetninga hafa vakið gremju í hópi þeirra sem hafa barist gegn þeim.

Om Podcasten

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.