Þáttur tekinn upp með astma og hip impingement. Gummi #ársins á línunni og hamagangur í Kórnum.

Fórum yfir nýafstaðið heimsmeistaramót í Bakgarðshlaupum - í fáum orðum. Skoðuðum hvað gerðist uppi á Skaga, spjaldaferill Arnars Gunnlaugs á tímabilinu og hverjir misstu hausinn í Kórnum.

Om Podcasten

Kjarnyrt umræða um málefni liðandi stundar þar sem rjóminn er fleyttur af troginu og málin skoðuð út frá öðrum vinklum en almennt þekkist í hlaðvarpsþáttum hérlendis.

Þó að knattspyrnutengd málefni séu leiðandi efnistök, hika þáttastjórnendur ekki við að færa umræðuna í þá áttir sem þeim hentar hverju sinni.

 Þáttastjórnendur eru Vilhjálmur Freyr Hallsson, skipatækjamaður og Andri Geir Gunnarsson, eilífðarstúdent og heimspekinemi.