39. Við rændum Villa Naglbít

Þrítugasti og níundi þáttur Trivíaleikanna. Að þessu sinni rændum við tónlistarmanninum og spurningaþáttagoðsögninni Vilhelm Antoni eða Villa Naglbít eins og hann er kallaður og buðum honum sæti í ísköldu stúdíó Sána. Auk hans mættu til leiks Trivíaleikakempurnar Arnór Steinn, Ingi og Kristján í einhverjum eftirminnilegasta þætti hlaðvarpsins. Nafn hvaða pastategundar merkir einfaldlega „litlar tungur” á ítölsku? Hvað byrja spilarar með mörg spil á hendi í Ólsen Ólsen? Þetta og margt annað er tæklað í þættinum. Áríðandi tilkynning: Við viljum minna ykkur öll á að Trivíaleikarnir verða með fyrsta Pub Quizið í sögu hlaðvarpsins þann 5. desember nk. í Arena (turninum) í Kópavogi klukkan 21:00. Ekki missa af þessari veislu og láttu sjá þig á Arena 5. des! Keppendur: Vilhelm Anton, Arnór Steinn, Kristján og Ingi.

Om Podcasten

Trivíaleikarnir færa pub quiz stemninguna beint heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Tvö tveggja manna lið etja kappi í léttri og skemmtilegri spurningakeppni þar sem spurningar um allt milli himins og jarðar dynja á keppendum. Hvort sem þú elskar pub quiz og spurningaspil eða veist varla hvað Gettu Betur er, að þá er eitthvað fyrir þig í Trivíaleikunum. Hlustaðu, hlæðu með okkur og lærðu eitthvað nýtt í leiðinni. Fáðu fleiri þætti með áskrift á Patreon: https://www.patreon.com/trivialeikarnir