Æðruleysið - 14. Þáttur

Verið velkomin í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer tvö sem er að „Ekki taka neitt persónulega“ og verður það svo verkefni þessarar viku. Gangi ykkur vel. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir Njótið!!

Om Podcasten

ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa einhverjum. - Njótið vel.