Krakkafréttir vikunnar 18. mars 2019

Farið er yfir það helsta úr Krakkafréttum vikunnar og það sem var efst á baugi skoðað. Í þætti kvöldsins ætlum við að rifja upp helstu fréttir vikunnar. Í kvöld segjum við meðal annars frá stórafmæli Barbie, krökkum í Selinu við Melaskóla sem gera hlaðvarpsþætti, fræðumst um kvíða með Sólveigu Kristjánsdóttur barnasálfræðingi og heyrum svo umfjöllun um uppáhaldsbók í Krakkakiljunni. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.