Krakkafréttir vikunnar 21. janúar 2019

Farið er yfir það helsta úr Krakkafréttum vikunnar og það sem var efst á baugi skoðað. Rætt er við reynda fréttamenn og sérfræðinga sem útskýra atburði líðandi stundar. Við segjum meðal annars frá hugsanlegum breytingum á klukkunni á Íslandi, kynnum okkur orð ársins 2018 að mati krakka og fræðumst nánar um þær tillögur sem bárust með Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðgjafa og heyrum af ósköp venjulegu eggi sem sló í gegn á samfélagsmiðlum. Sérfræðingur: Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðgjafi RÚV Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.