Krakkafréttir vikunnar 6. maí 2019

Farið er yfir það helsta úr Krakkafréttum vikunnar og það sem var efst á baugi skoðað. Rætt er við reynda fréttamenn og sérfræðinga sem útskýra atburði líðandi stundar. Við sögðum meðal annars frá barnabókaverðlaunum, útskýrðum verkalýðsdaginn, fjölluðum um plokkdaginn og kynntum okkur samtökin krakkaveldi. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.