Sögur - Bókaormaspjall með Kristjönu Kríu og Matthildi

Bókaormaráð KrakkaRÚV er skipað 12 krökkum sem hafa lesið 14 bækur eftir mismunandi höfunda sem koma út nú fyrir jólin. Þau undirbúa viðtöl um þær ásamt umsjónarmönnum KrakkaRÚV og úr verða skemmtileg og áhugaverð samtöl milli lesenda og höfunda. Í þessum þætti verða tekin saman helstu umræðuefni tveggja viðtala. Kristjana Kría Lovísa Bjarnadóttir spjallar við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um bókina Fía Sól gefst aldrei upp og Matthildur Beck við Jón St. Kristjánsson um bókina Villinorn. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.