Sögur - Bókaormaspjall með Sölku Þorgerði og Þórunni Birnu

Bókaormaráð KrakkaRÚV er skipað 12 krökkum sem hafa lesið 14 bækur eftir mismunandi höfunda sem koma út nú fyrir jólin. Þau undirbúa viðtöl um þær ásamt umsjónarmönnum KrakkaRÚV og úr verða skemmtileg og áhugaverð samtöl milli lesenda og höfunda. Í þessum þætti verða tekin saman helstu umræðuefni tveggja viðtala. Salka Þorgerður Jóhannesdóttir Stelludóttir spjallar við Benný Sif Ísleifsdóttur um bókina Jólasveinarannsóknin og Þórunn Birna Kristinsdóttir við Harald F. Gíslason um bókina Bieber og Botnrassa í Bretlandi. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.