Sögur - Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Í þættinum í kvöld ætlum við meðal annars að skreppa til Úganda hvorki meira né minna. Við ætlum að heyra af ferðalagi íslenskrar stelpu sem er stödd þar í landi en hún er að gera heimildarmynd um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Við fáum líka að vita svolítið meira um hver þessi Heimsmarkmið eru og hvað þau gera og tölum við Bergstein Jónsson, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Hann sagði okkur líka frá samtökunum UNICEF og starfi þeirra. Gestir: Elíza Gígja Ómarsdóttir, 15 ára. Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.