Sögur - Risastórar smásögur I

Í þættinum í dag fjöllum við um Sögur eins og venjan er á fimmtudögum. Við tökum fyrir smásögur í dag, þó engar smá sögur því við heyrum verk eftir unga rithöfunda sem þóttu skara fram úr á Sögum verðlaunahátíð barnanna í fyrra. 34 sögur voru valdar og birtar í rafrænu smásagnasafninu Risastórar smásögur og það má finna á vef Menntamálastofnunnar, https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/risastora/ Höfundar og smásögur: Alma Bergrós Hugadóttir, 11 ára - Spiladósin Árni Hrafn Hallsson, 9 ára - Bókavandræði Baldvin Barri Guðmundsson, 9 ára - Refurinn og maðurinn Dagný Sara Viðarsdóttir, 12 ára - Englar Hrafnar Jökull Kristinsson, 9 ára - Flutningur Pálína Sara Guðbrandsdóttir, 10 ára - Draugaskólinn Umsjónarmaður: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Við erum í útvarpinu alla mánudaga til fimmtudaga í vetur kl: 18:30 á RÁS 1 þar sem við ætlum að skemmta okkur saman, læra um alls konar spennandi hluti sem tengjast menningu, vísindum, sögum og fréttum, hlusta á skemmtilega tónlist og fá til okkar krakka í spjall. Heyrumst! Þáttastjórnendur: Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Jóhannes Ólafsson og Sævar Helgi Bragason.