Leirmaður/Leikmaður feat. Emmsjé Gauti

Rapparinn og Siggi Hallinn, Emmsjé Gauti, mætti í heimsókn í Váfugls-stúdíóið til að tala um styttuna Leirfinn, einbýlishúsavegginn í Breiðholti og nasistahamborgara. Sömuleiðis er farið í saumana á því hvernig er best að heilsa óljósu fólki út á götu. Mögulega skemmtilegasti Váfugl ársins. Í seinni hluta þáttarins gerum við tilraunir með minimal elektró-undirspil fyrir ljúfari hlustunarupplifun. Einhverskonar smellir fara þá að heyrast í upptökunni. Eru þetta tæknilegir örðugleikar? Eða eru þetta mögulega bara rimlarnir á stunna shadesunum okkar að rekast í hljóðnemann? Smellið ykkur á nýjan Váfugl.

Om Podcasten

Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.