Ragnar Sigurjónsson - Grafskipið Vestmannaey

Í fimmtugasta og fyrsta þætti er rætt við Ragnar Sigurjónsson um lífshlaup hans og störf. Raggi eins og hann er oftast kallaður ræðir við mig um fjölskylduna, æskuna, verslunarrekstur, lífið i Viðey, fuglaáhugann og margt, margt fleira.Í seinni hluta þáttarins er lesin samantekt um Grafskipið Vesmannaey. Heimildir eru fengnar af Heimaslóð.is, einnig frá Kára Bjarnasyni á Bókasafninu og Sveini Valgeirssyni fyrrum starfsmanni Vestmannaeyjahafnar.Endilega fylgjið hlaðvarpinu á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga.

Om Podcasten

Hlaðvarpsþáttur þar sem litið er yfir líf og störf fólks sem tengist Vestmannaeyjum á einn eða annan þátt. Einnig verða lesin upp brot úr sögu Vestmannaeyja í samstarfi við Bókasafn Vestmannaeyja.