084 Steinsmuga (The Rock)

Þegar gamall hermaður ákveður að setja saman hryðjuverkateymi og halda ferðalöngum föngnum í þekktasta fangelsi allra tíma, gegn því að fá ríkisstjórn Bandaríkjanna til að viðurkenna mistök og endurgreiða gamlar skuldir, þarf að leita til góðkunningja lögreglunnar til að stoppa þá. Hryðjuverkateymið hótar árás á San Fransisco með hræðilegustu efnavopnum sem fundin hafa verið upp og sem setur alla í erfiða stöðu.

Om Podcasten

Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli horfa á mikilvægustu myndir allra tíma. Hver þáttur er tileinkaður einni mynd af ótæmandi lista bíómynda sem Sandra hefur ekki séð áður. Þau skeggræða hverja mynd fyrir sig og allt það sem henni við kemur og það sem þeim dettur í hug líka.