Þvottahúsið #22 Halldóra Mogensen, freigátu skipstjóri Pírata og móðir.

VáVáVá. Ég hef aldrei séð sjálfan mig í stjórnmálamanneskju né neinum stefnum neins stjórnmálaflokks áður. Ég hef aldrei kosið en eftir þetta viðtal gæti það mögulega breyst. Hún elskuleg Halldóra kom inn með mannamál, hjarta, hnífskörp og óhrædd við að segja skoðanir sínar á kerfinu eins það lítur út frá hennar bæjardyrum séð. Núvitund, uppeldi, menntastefnur, virk samkennd, borgaralaun, útíopía, hampur og CBD. Með skemtilegri manneskjum sem ég hef hitt. https://piratar.is ...

Om Podcasten

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.